Kossar Án Vara Lyrics
Það snjóar hérna úti og garðurinn hann gránar
Garðastrætishúsin verða hlýleg að sjá
Og kertaljóssins skuggar skrítnum myndum varpa
á veggina í stofunni sem ég stari á
Og myndirnar þær læðast, lúmskar inn í hugann
Leggjast bak við augun og hvísla því að mér
Að ástin sé augnablik sem brenni mannsins hjarta
í brjósti mínu er eldurinn enn að leika sér
Og þau svífa í kvöld snjókornin
Sem kossar án vara
Og við sem vorum ástfangin
Aldrei náðum saman
https://www.elyricsworld.com/kossar_%C3%81n_vara_lyrics_bubbi_morthens.html
það lá alltaf í loftinu
Að ég mundi fara
Það snjóar hérna úti og enginn er á ferli
Allt er hjúpað rökkri og kertin eru dauð
Senn fer hann að birta og bílar vakna kaldir
En borgin sefur ennþá og gatan mín er auð